Wednesday, March 23, 2011

Bjórkvöld - pubquiz

Fimmtudagskvöldið 31. mars mun Ólafía standa fyrir þrælskemmtilegu bjórkvöldi með spurningakeppni þar sem spurt verður út í stórt og smátt sem tengist dægurmálum, námi okkar og framtíðarstarfi (allir að glugga í gamlar skólabækur og hefja stífar æfingar!). Há-leynileg verðlaun verða í boði ásamt titlinum Barsvar-meistarinn 2011.
Ætlunin er að gleðin hefjist uppúr klukkan átta og á staðnum verður bjórkútur á vegum Ólafíu. Félagar fá frítt á kvöldið en aðrir greiða 1000 krónur aðgang. Staðsetning verður auglýst innan skamms.
Hlökkum til að sjá ykkur!
kveðja, stjórnin

1 comment:

Anonymous said...

þetta verður AWESOME! :D

kv AnnaG