Saturday, October 9, 2010

Árshátíð

Framhaldsnemum í félagsráðgjöf er boðið að taka þátt í árshátíð félagsráðgjafafélagsins og við munum að sjálfsögðu fjölmenna þangað!

Félagar Ólafíu fá miða á 3.000 kr. og þurfa að skrá sig hjá Bjarney (brg15@hi.is) fyrir 18. október, aðrir borga 4.300 kr og panta sinn miða gegnum félagsráðgjafafélagið.
Makar eru að sjálfsögðu velkomnir


Árshátíð Félagsráðgjafafélags Íslands verður haldinn þann

22. október næstkomandi í Borgartúni 6 - Veislusetrinu.

Fordrykkur hefst kl. 19.30

Matseðill

Forréttur er rjómalöguð humarsúpa
Aðalréttur er glóðasteikt lambafillet
Eftirréttur er frönsk súkkulaðiterta með jarðaberjum og rjóma


Siggi Hlö ætlar að sjá um að gera allt vitlaust á dansgólfinu með sinni alkunnu snilld!
Viðræður standa yfir við veislustjóra sem ekki er nú ekki af verri endanum :)
Miðaverð er 4.300 kr. Skráning fer fram á heimasíðu félagsins www.felagsradgjof.is

vonumst til að sjá sem flesta!