Friday, April 1, 2011

Bjórkvöld Ólafíu 31. mars






Vinningshafar titilsins "Barsvarmeistarinn 2011"

Frumlegasta nafn á liði "Pinkies"


Wednesday, March 23, 2011

Bjórkvöld - pubquiz

Fimmtudagskvöldið 31. mars mun Ólafía standa fyrir þrælskemmtilegu bjórkvöldi með spurningakeppni þar sem spurt verður út í stórt og smátt sem tengist dægurmálum, námi okkar og framtíðarstarfi (allir að glugga í gamlar skólabækur og hefja stífar æfingar!). Há-leynileg verðlaun verða í boði ásamt titlinum Barsvar-meistarinn 2011.
Ætlunin er að gleðin hefjist uppúr klukkan átta og á staðnum verður bjórkútur á vegum Ólafíu. Félagar fá frítt á kvöldið en aðrir greiða 1000 krónur aðgang. Staðsetning verður auglýst innan skamms.
Hlökkum til að sjá ykkur!
kveðja, stjórnin

Friday, January 28, 2011

Vísindaferð á Litla-Hraun

þriðjudaginn 8. febrúar heldur Ólafía í vísindaferð austur fyrir fjall á Litla-Hraun og er gert ráð fyrir því að hópurinn fari einnig saman út að borða. skráning er í ferðina og korthafar ganga fyrir. skráning fer fram í athugasemdum á þessa færslu og líkur henni að kveldi miðvikudagsins 2. febrúars.

hlökkum til að sjá ykkur!
kveðja stjórnin